Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Loksins myndir og Billund er bara LEGÓ!

Ég fékk góða sendingu með tengdaforeldrum mínum sem komu frá Íslandi í gærkvöldi. Eins og þið kannski vitið þá giftum við Raggi okkur í sumar (07.07.07) í Húsavíkurkirkju með pompi og prakt en það var að sjálfsögðu löngu kominn tími til þess eftir 10 ára "forleik".

En allavegana....mínir elskulegur tengdaforeldrar komu í gærkvöldi með flugi og sóttum við þau til Billund. Þau komu með ýmislegt góðgæti frá Íslandi til okkar. Mamma mín og pabbi sendu okkur einnig góðan poka. Takk elsku mamma og pabbi og tengdó fyrir okkur. Það sem við biðum spenntust eftir voru þó brúðkaupsmyndirnar okkar. Við vorum nefnilega með 2 ljósmyndara sem fylgdu okkur allan daginn sjálfan brúðkaupsdaginn en Ásta mágkona mín sá um að "græja" þessa ljósmyndara. Við sjáum sko ekki eftir þeirri ákvörðun og fengum æðislegar myndir á disk frá ljósmyndurunum í gær og hef ég sett nokkrar myndir inn fyrir ykkur til að skoða. Ég mun einnig setja inn fleiri myndir á heimasíðuna hans Hermanns Veigars og getið þið kíkt á þær ef þið nennið og viljið.

Nýgift undir Húsavíkurfjalli 

Annars er það að frétta að Billund er ekki skemmtilegur staður að mínu mati...ekkert þar að gera nema Lególand, en við komumst að því í gær þegar við fórum snemma til Billund til að eyða deginum þar þangað til við myndum sækja tengdó á flugvöllinn um kvöldið. Við keyrðum um alla Billund fram og tilbaka til að finna eitthvað að gera en enduðum á leiksvæði á tjaldsvæði bæjarins. Frekar hallærislegt það en Hermann var sáttur þannig að markmiðinu var náð.

Í dag fórum við fjölskyldan með tengdó til Randers í Regnskóga"dómið". Það var heldur betur upplifun. Þvílíkur hiti og raki, allt fullt af maurum og köngulóm, óhemjulega vond lykt og allur pakkinn. En váá.....þetta var geggjað. Mæli með þessu, sérstaklega fyrir þá sem hafa gaman af því að svitna mikið.

Hafið það gott greyin mín og farið varlega inn í næstu viku.


Wonders and big marks........

 Já það voru heldur betur undur og stórmerki sem gerðust í gær. Ég og Rakel, nýja vinkona mín, hlunkuðumst loksins í göngutúr. Við höfum rætt það í nokkrar vikur að fara í líkamsrækt en af einhverjum óútreiknanlegumWhistling ástæðum hefur ekkert orðið úr því.....þangað til í gær!

Við vinkonurnar hentumst af stað í fínum úða um 5 leytið og vorum rétt komnar af stað þegar gerði þessa líka fínu rigningu. En þar sem við erum nú býsna vatnsheldar þá létum við það sko ekkert á okkur fá.....í klukkutíma örkuðum við milli sjávar og sveita og nutum þess í botn. Kannski ég ýki pínu með sjóinn og sveitina....en við gengum hér um hverfið og inn í skóg holdvotar eins og eftir dýfu í sjóinn þannig að fílingurinn var sá sami.

Við vorum býsna rosknar með þetta framtak hjá okkur og stefnum á að gera þetta aftur.....jafnvel bara nokkuð oft aftur. En best er þó að vera ekki með neinar fullyrðingar því eins og þið vitið þá er stundum erfitt að standa við stóru orðin.

Takk Rakel mín fyrir þrusu göngu og gott spjall.

Og svona fyrir ykkur hin sem nennið ekki að hlunkast í göngutúr....þá mæli ég með þessari speki hér að neðan sem ég fékk sent í gær og finnst algjör snilld.

Yesterday is history, tomorrow is a mystery, but today is a gift, that’s why its called the present.


Fákurinn mættur á svæðið!!!

Ekki nóg með það að eiginmaðurinn sé með nokkur vel valin húðflúr á handleggjunum, heldur á hann núna  mótorhjól líkaWink  Er ég nokkuð viss um að þessi lýsing hljómar eggjandi í eyrum sumra kvenna......arggggg!!!

En samsagt, Raggi minn er búinn að fá sér vespu!!!
Ég veit ekki ennþá hvað mér finnst um þetta farartæki, en það líkist einna helst slátturvél á tveimur gúmmíum með Nilfisk mótor!! Markmiðið með tryllitækinu er að komast í og úr skóla með litlum tilkostnaði og í leiðinni að gefa mér það frelsi á daginn að ég ráði í hvaða búð ég ferWhistling

Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá kallinn mæta á fáknum, með vígalegan raserhjálm á höfðinu var.....Ómægod, er hægt að vera minna æsandi!!
Það verður bara að viðurkennast að þessi "mótorhjól" eru bara ekkert getnaðarleg, allavegana sé ég ekki alveg fyrir mér að Terminator 2 hefði náð sömu vinsældum með Arnold Schwarzenegger á vespu!!

En allavegana.....fákurinn á eflaust eftir að reynast vel og hver veit.....kannski verður kallinn bara ansi flottur á vespunni næsta sumar í stuttbuxum og ermalausum??!!

vespa_superman.preview


Fyrr má nú fyrr vera óstressið!!

Það er ekki ofsögum sagt að Danirnir séu "ligeglad". Allt tekur langan tíma hér í Danmörku, hvort sem þú ert að kaupa húsgögn, sækja um þjónustu eða að senda póst!!

Við erum búin að kaupa ýmis húsgögn síðan við komum, eldhúsborð, stóla, skenk, kommóðu, skáp, hillu og fleira. Hillurnar eru ekki enn komnar (liðinn mánuður) og þurftum við að bíða í 2 vikur eftir skápnum og skenknum. Þegar það loksins kom þá var skenkurinn gallaður og vantaði festingar á skápinn. Raggi fór og lét panta festingar fyrir um 3 vikum og komu þær loksins fyrir helgi. En þá komu að sjálfsögðu rangar festingar og þurfum við að bíða núna í aðrar 2 vikur. Það skal tekið fram að ég nennti ekki að gera mál úr gallanum í skenknum þar sem ég var orðin óþolinmóð að fá hann og nennti ekki að bíða í aðrar 2 vikur eftir nýjum!!

En núna það nýjasta er helv.....pósturinn. Málið er að besta vinkona Hermanns átti afmæli fyrir mánuði síðan og sendum við henni afmælispakka. Það eru liðnar meira en þrjár vikur síðan við sendum pakkann (sem var nú bara bólstrað umslag með fötum í) og var hann að komast til skila Í GÆR!!! Þetta finnst mér eiginlega vera einum of "ligeglad", samt kostaði 2000 kr. að senda þennan litla létta pakka, en það var með B-pósti (sem var kannski ekki beint til að flýta afgreiðslunni). 

Spurning hvort það sé fljótlegra að senda flöskuskeyti heldur en að senda bréfapóst til Íslands??? Hefur einhver kannað það???


Gómsæti maðurinn minn!

Síðustu vikurnar hefur maðurinn minn verið talinn afar gómsætur....að mati flugnanna!!!

Hann er svo bitinn af "mugginum" og fær þvílíku útbrotin og bólgurnar að hann gæti fengið hlutverk í heimildarmynd um holdsveiki án þess að þurfa í makeup.

mosquitoÉg var hrikalega bitin fyrstu dagana mína hér í Danaveldi og fékk mörg ljót sár á fæturna, rassinn og hendurnar en síðan hef ég nánast verið látin í friði, 7,9,13. Þessu er öfugt farið með minn elskulega mann, hann var ekkert bitinn í fyrstu en fær heldur betur að kenna á því núna. Er örugglega með hátt í 50 bit um allan líkamann og hefur greinilega ofnæmi undan bitunum. Hann er því núna farinn að borða margfaldan skammt af B-vítamíni (sem honum var ráðlagt í apóteki) og vonar það besta.

En þrátt fyrir allar þessar bólgur og roða þá er hann alltaf jafn sætur fyrir mérInLove


Vinkonur mínar...silfurskotturnar!!

Það er svo skrýtið að ég hef alltaf heyrt að það VERÐI að eitra fyrir silfurskottum og að það sé vísbending um raka sem VERÐI að laga. Allir út úr húsi "med det samme" og kalla á meindýraeyði!!

Hér heima hjá mér er allt fullt af þessum litlu fallegu skottum. Fyrst fékk ég nett áfall þegar ég sá eina á stærð við járnsmið skjótast yfir forstofuna hjá mér, en núna kippi ég mér ekkert upp við þær. Málið er að þær eru alveg skaðlausar og þar sem allt er fullt af raka hér í Mosanum, sérstaklega þar sem allt svæðið er byggt á mýri, þá þykir bara eðilegt að silfurskottur séu hér á meðal köngulónna.

Þannig að ég hef tekið þá ákvörðun að fyrst ég get ekki rekið þær út, þá verð ég bara að gera þær að vinkonum mínum, enda krúttlegar og silfurlitaðarTounge

250px-Silberfischchen


Einn góður svona í morgunsárið:)

Þrír synir afar guðhræddrar móður fóru að heiman til að spreyta sig á lífinu.
Allir áttu þeir miklu láni að fagna og græddu peninga í stórum fúlgum.
Að mörgum árum liðnum hittust þeir og ræddu meðal annars um gjafirnar
sem þeir höfðu sent aldraðri móður sinni.

"Ég reisti henni mömmu myndarlegt hús," sagði sá fyrsti.

"Ég sendi henni eitt stykki Mercedes Benz með bílstjóra," sagði annar.

"Ég gerði enn betur," sagði sá þriðji. "Þið munið hvað mamma hafði mikla unun
af að lesa Biblíuna og að hún er farin að missa sjón.
Þess vegna sendi ég henni stóran, brúnan páfagauk sem kann hana alla utan að.
Það tók tuttugu presta tólf ár að kenna páfagauknum þetta.
Verkefnið kostaði milljón dollara á ári, en það var þess virði.
Mamma þarf ekki annað en að nefna rit, kafla og vers
og þá fer páfagaukurinn með textann."

Skömmu síðar sendi móðirin sonum sínum þakkarbréf.

Til fyrsta sonarins skrifaði hún:
"Kæri sonur! Húsið sem þú byggðir er risastórt.
Ég bý aðeins í einu herbergjanna en þarf að þrífa allt húsið."

Sonur númer tvö fékk eftirfarandi bréf:
"Elskaði sonur! Ég er orðin alltof gömul til að ferðast.
Ég er alltaf heima og nota Bensinn aldrei. Bílstjórinn er óttalegur dóni."

Þriðja syninum sendi móðirin þessi skilaboð:
"Yndislega afkvæmi! Þú varst eini sonurinn sem gerðir þér grein fyrir
hvernig ætti að gleðja hana móður þína.
Kjúklingurinn var hreinasta hnossgæti!"

Takk Elín mín fyrir alla góðu brandarana....they make my dayTounge


Okkar skylda......

Hver hefur ekki fengið samviskubit yfir að borða sig pakksaddan og henda mat í ruslið??? Allavegana hugsa ég til þeirra 18.000 barna sem deyja daglega úr hungri þegar ég ligg á meltunni eða "nenni" ekki að eiga afganginn af kvöldmatnum.

Erfitt getur verið að finna leið til að leggja sitt af mörkum, nema þá kannski á jólunum þegar markviss söfnun fer í gang en þá finnst mér það vera borgaraleg skylda hvers og eins að styrkja. Reyndar finnst mér að það eigi að taka tíund af launum allra í desember og setja í gott málefni en það er allt önnur ella.

Eitt hef ég gert í mjög langan tíma sem fær mig til að líða örlítið betur....ég fer á hverjum degi, stundum oft á dag, inn á heimasíðuna www.thehungersite.com  Á þeirri síðu er hægt að styrkja með því einu að klikka á músarhnappinn. Mörg málefni eru á þessari síðu og þarf að fara á milli þeirra til að klikka og styrkja þannig hvert og eitt málefni en fyrir hvert klikk gefa fyrirtæki að andvirði x mikils.

The Hunger SiteThe Breast Cancer SiteThe Child Health SiteThe Literacy SiteThe Rainforest SiteThe Animal Rescue Site

Einnig er hægt að kaupa ýmsan varning á þessari síðu til að styrkja enn frekar. Til dæmis rakst ég á hálsmen með merki einverfunnar, en með því að kaupa eitt svoleiðis á tæplega 15 dollara þá verða gefnir 25 bollar af mat.

Ég hvet ykkur til að kíkja á þetta og setjið efst í "favorites".....tekur enga stund á hverjum degi, kostar ekkert, en skiptir sköpum fyrir þá sem þurfa á því að halda.


Ég hugsa......

Til heimahagana í hvert sinn sem ég opna bloggið mitt. Myndin af gula og rauða brunahananum er eins og sá sem hefur verið fyrir framan húsið í Heiðargerðinu hjá mömmu og pabba öll mín uppvaxtarár og einnig eiga þau svona garðbekk í fallega garðinum sínum. 

Hugsa til ykkar og sakna elsku mamma og pabbiKissing


Hjóladagurinn mikli....

Við hjónin hjóluðum meira í dag en við höfum gert síðustu 10 ár. Við keyptum okkur ný og flott hjól fyrir um 4 - 5 árum en þau hafa voða lítið, nánast ekkert, verið notuðBlush
En fyrst að við erum nú orðin opinberir Danir þá dustuðum við af þeim rykið (köngulóarvefina réttara sagt) í síðustu viku og er planið að vera voða dugleg að hjólaUndecided

Við hliðina á Mosanum (en það kallast leigusvæðið sem við búum í) er stórt svæði sem er fullt af litlum húsum. Ég rakst á þetta svæði í vikunni þegar við Hermann fórum í hjólreiðatúr og svo fórum við fjölskyldan í hjólreiðartúr í morgun til að skoða þetta svæði enn betur.
Þetta er alveg ótrúlegt svæði og hrein og bein upplifun að hjóla þarna um. Húsin eru ekki í tugatali heldur hundraðatali og á einum gatnamótunum er minnisvarði um Bente nokkurn sem var skotinn af Nasistum í janúar 1945 eða í lok seinni heimstyrjaldarinnar. Húsin
eru mest allt pínulitlir "skúrar" með garði en samt er svo mikil vinna lögð í þessu hús og garða að það er greinilegt að fólki þykir vænt um staðinn sinn og leggur mikinn metnað í hann. Stærðin skiptir engu eða útlitið og er alveg merkilegt að það eru ekki nema kannski 10 metrar á milli húsanna þannig að prævasíið er ekki mikið. Hverfið er svo krúttlegt og vinalegt að við Raggi ákváðum að kaupa eitt hús þarna í ellinni. Fólk var úti að vinna í görðunum við sum húsið og heilsuðu okkur þegar við hjóluðum fram hjá. Í langt flestum tilvikum var um eldra fólk að ræða og var greinilegt að þetta fólk leggur meiri áherslu á útiveruna og kósýheitin heldur en einhverja flotta bíla og stór og merkileg hús. Bílarnir sem stóðu fyrir framan húsin voru þvílíkar dósir sem varla nokkur Íslendingur myndi láta sjá sig á. En svona hverfi eru víst út um alla Danmörku og finnst mér þetta algjör snilldCool 

Þetta hefur heldur betur verið fínn dagur í dag, sólskinsveður og mikið hjólað. Fórum meira að segja alla leið út í Egebjerg til Sigga bróður pabba og Hrannar á hjólunumSmile Það var æðislegt að hitta þau eins og alltaf.

bikeNúna er komið kvöld, klukkan rúmlega 9 og ég komin upp í rúm eins og mér einni er lagiðGrin 

Hafið það gott lömbin mín.


Næsta síða »

Hver er ég?

Berta María Hreinsdóttir
Berta María Hreinsdóttir

Er Húsvíkingur í húð og hár....gift byggingarfræðinema og eigum við tvo fallega stráka . Er þroskaþjálfi og bý í Horsens, Danmörku. Blogga um það sem mér dettur í hug hverju sinni, en sleppi pólítík og öðru sem ég hef takmarkaðan áhuga á!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband