3.9.2007 | 16:09
Hvar er flödesósan???
Eitt af þeim fáu skrýtnu orðum sem maður lærði í dönsku í skóla hér í denn var orðið flöde...en fyrir ykkur sem ekki lærðuð setninguna "rödgröt med flöde", þá þýðir flöde rjómi. Í Danmörku er til fullt af rjóma í alls kyns formum og fituhlutföllum en hvergi nokkurs staðar sé ég flödesås!!!!
Síðustu x mörg ár hef ég notað flödesås í pökkum einna mest með mat....því hafði ég nú ekki áhyggjur af því að byrgja mig upp af því áður en ég flutti til flödelandsins mikla. Grænar baunir, pizzasósa og annað varð frekar fyrir valinu!! En það er sama í hvað búð ég fer hér í bæ hestanna.....hvergi til flödesås!!!
Þannig að fyrir ykkur sem viljið gleðja einmana húsmóður, þá væri vel þegið að fá sendan sósapakka við tækifæri....bara svona ef þið skylduð vinna solleiðis á tombólu og vilduð ekki nota til eigin matargerðar.....kostnaður greiðist af móttakanda.
Allavegana....dagurinn í dag hefur liðið frekar hægt, en örugglega. Fjölskyldan fór öll á fætur rúmlega 7 og svo var skólastrákunum skutlað í skólann. Fyrsta ferð var klukkan 7:50, komið við á Ranunkelvej og tveir bekkjarfélagar Ragga teknir með og ferðinni heitið í Vitus Bering. Klukkan 8:20 var önnur ferð farin til Genved, en Hlynur átti að mæta sinn fyrsta skóladag í morgun. Allt gekk vel í morguntraffíkinni, kom reyndar á óvart að fleiri hjól eru á götunum en bílar og eiga hjólin alltaf réttinn og því vissara að vera með augun á 360° því þessir hjólavitleysingar skjóta upp kollinum á hverju horni. Þegar við Hermann komum heim um 9 leytið þá fengum við okkur jógúrt og Cocoa puffs útá (frá Íslandi off kors því puffsið er ekki heldur til í Danmörku!!) Eftir frekar látlausan dag voru skóladrengirnir sóttir aftur í skólann og farið út að fríkka upp á lóðina og smúla niður köngulær og vefi af þakskegginu....en köngulær eru eitt af því sem nóg er af í Danmörku!!
Jæja.....best að hlunkast í eldhúsið og finna eitthvað í gogginn handa þreyttum svöngum skólastrákum.
Tenglar
ERTU AÐ KOMA TIL HORSENS?
Gisting og afþreying í Horsens og nágrenni
- Matsby legepark Líkt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík
- Gamli bærinn í Aarhus
- Randers regnskov Ótrúleg upplifun
- Tívolí í Aarhus
- Djur sommerland Ómissandi
- Givskud....dýragarður Frábær dýragarður og leiksvæði
- Legoland Allir þurfa að fara þangað allavegana einu sinni
- Gistihús Fínt fyrir hóp eða stóra fjölskyldu
- Eddugisting Frábært að gista þarna:)
VINIR MÍNIR
Hvað er maður án góðra vina??
FJÖLSKYLDAN
Þeir nánustu**
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Íþróttir
- Daninn til United á 30 milljónir punda
- Rashford í læknisskoðun hjá Villa
- Austurríkismaðurinn kominn til Tottenham
- Risastór skipti í NBA-deildinni
- Aðeins stærri vettvangur til þess að gera sig að fífli
- Íslendingnum hrósað í hástert
- Sturlaðasta mark sögunnar íslenskt?
- Slot færði stuðningsmönnum slæmar fréttir
- Stórleikur Hákons sem meiddist
- Óvænt tap Real í Barcelona
Athugasemdir
Ég skal koma með flödesósu fyrir þig Berta mín. En mér rennir nú samt í grun að póstkassinn þinn eigi eftir að fyllast eftir þessa færslu, heh
Kolbrún Jónsdóttir, 3.9.2007 kl. 16:45
Heldurðu það....eru margar tombólur í gangi núna????
Ég (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 17:43
Sæl Berta mín. En hvað þú ert góð að stjana svona við kallana. Ég er sko alveg til í að vera í fóstri hjá þér Við "stúlkurnar" gætum haft náttfatapartí og kósý. Svo hvenær á ég að koma??
Guðmundur Þór Jónsson (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 21:34
Veistu Gummi minn.....þú mátt sko mjög gjarnan vera í kaffi hjá mér alla daga frá 7:50 til 16:00, ég held að Hermann yrði líka mjög glaður með það Svo gætum við haldið partý svona endrum og eins til að brjóta upp kvöldin fyrir framan imbann og tölvuna
Berta María Hreinsdóttir, 4.9.2007 kl. 06:07
Hey!!
Ég sendi gamla settið með flöðesósur í öllum mögulegum sortum, það gengur engan veginn að vera flöðesósufrír í lífinu :-)
Bjögga (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 12:04
Hæhæ!
Gaman að sjá að þú ert farin að blogga.. og veistu það er fullt af tombólum í Kópavoginum núna...:) Vá hvað ég væri til í að kíkja á þig í kaffi nokkra daga hehe :)
kv.Hobban
Hobba (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 16:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.