7.10.2007 | 08:33
Bráðum get ég sko þurrkað:)
Já....búið er að panta þurrkara á heimilið. Mikið er ég glöð og hlakka SVO til á þriðjudaginn því þá kemur hann í hús. Loksins get ég þurrkað þvott án þess að það taki tvo daga og viftu. Ástæðan fyrir því að ég fæ þann heiður að eiga þurrkara er að ég á bestu tengdamömmu í heimi!! Ástarþakkir til þín tengdó***
Þegar við Raggi fórum að skoða þurrkara þá urðum við svolítið hissa á því að það er ekki hægt að fá þurrkara í A-orkuflokki nema svo dýra að maður þarf að selja úr sér nýrun fyrir þeim, en að sjálfsögðu var planið að fá sér þurrkara í þeim orkuflokki því rafmagnið er dýrt í Danmörku.
B-orkuflokkurinn er algengari en C er algengastur og sá eini sem er á "verði með viti". Við völdum því barkalausan, Blomberg, í C-klassa og erum í skýjunum með það.
Á þriðjudaginn verð ég hamingjusamasta húsmóðir í heiminum með flotta þurrkarann minn
Tenglar
ERTU AÐ KOMA TIL HORSENS?
Gisting og afþreying í Horsens og nágrenni
- Matsby legepark Líkt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík
- Gamli bærinn í Aarhus
- Randers regnskov Ótrúleg upplifun
- Tívolí í Aarhus
- Djur sommerland Ómissandi
- Givskud....dýragarður Frábær dýragarður og leiksvæði
- Legoland Allir þurfa að fara þangað allavegana einu sinni
- Gistihús Fínt fyrir hóp eða stóra fjölskyldu
- Eddugisting Frábært að gista þarna:)
VINIR MÍNIR
Hvað er maður án góðra vina??
FJÖLSKYLDAN
Þeir nánustu**
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Ég vissi að pabbi væri farinn
- Dómur vegna tilraunar til manndráps mildaður
- Jóhann boðar róttækar breytingar
- Ekkert lífsmark hjá hinu opinbera í kortagerð
- Kostnaður á hvern nemanda nálgast þrjár milljónir
- Jón Gnarr gagnrýnir orðfæri ráðherra
- Skerðingar miklar og foreldrar í vandræðum
- Stórfelld áhrif uppbyggingar vindorku á vegakerfið
Erlent
- Danir og Norðmenn í varnarsamstarf
- Nýr yfirhershöfðingi NATO í Evrópu
- Ferðabannið gildi aðeins um stjórnlaus lönd
- Fjórtán ár fyrir skotárás í göngum
- Musk segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum
- Formaður Umbótaflokksins lætur af störfum
- Vináttan sögð hanga á bláþræði
- Fjórtán lík fundust í Venesúela
Athugasemdir
Hæ hæ. Innilegar hamingjuóskir með þurrkarann, en er ekki jafndýrt að vera með viftu yfir fötunum? Hlakka til að heyra hvernig föt verða eftir danskann þurrk...múhahaha
. Hafið það gott. knús knús.
Guðmundur Þór Jónsson, 7.10.2007 kl. 16:47
til hamingju með þurrkarann, bráðnauðsynlegt tæki í reykvísku rigningunni eins og greinilega í horsens... engar köngulær í honum allavega:)
elsa (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 14:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.