12.10.2007 | 09:46
Nýtur þjóðfélagsþegn!
Þegar ég var nemi á þriðja ári í þroskaþjálfanum þá vann ég með öldruðum einstaklingum og fannst það mjög spennandi starfsvettvangur. En einhverfan varð samt ofan á og hef ég unnið með börnum/unglingum með einhverfu síðustu fimm ár og líkað vel. Ég stefni á að gera það áfram í framtíðinni en þangað til ætla ég að prófa eitthvað annað og hef því ráðið mig við umönnun aldraðra hér í Horsens og ætla að reyna að bæta lífsgæði einstaklinganna eins og ég mögulega get.
Ég get ekki beðið eftir að byrja að vinna, þrátt fyrir að mér líki mjög vel að vera heima með einkasoninn þá læri ég t.d. mjög takmarkaða dönsku á því, en að læra tungumálið er eitt það mikilvægasta þessa dagana til að "fúnkera" sem Dani. Ég þarf að komast út á vinnumarkaðinn, læra dönsku, fá innkomu inn á bankareikninginn og finna að ég geri gagn í þjóðfélaginu. Það er nefnilega pínu skrýtið að lifa í nýju landi, fá barnabætur, húsaleigubætur, fría heilsugæslu, frítt nám, niðurgreiddan leikskóla (þegar að því kemur)....en skila engu tilbaka.
Á fimmtudaginn í næstu viku klukkan 7:00 verður semsagt breyting þar á.......Berta verður virkur þjóðfélagsþegn í Danaveldi!!!
Tenglar
ERTU AÐ KOMA TIL HORSENS?
Gisting og afþreying í Horsens og nágrenni
- Matsby legepark Líkt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík
- Gamli bærinn í Aarhus
- Randers regnskov Ótrúleg upplifun
- Tívolí í Aarhus
- Djur sommerland Ómissandi
- Givskud....dýragarður Frábær dýragarður og leiksvæði
- Legoland Allir þurfa að fara þangað allavegana einu sinni
- Gistihús Fínt fyrir hóp eða stóra fjölskyldu
- Eddugisting Frábært að gista þarna:)
VINIR MÍNIR
Hvað er maður án góðra vina??
FJÖLSKYLDAN
Þeir nánustu**
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til lykke með þetta Berta mín!
Skil þig svo vel. Þó að það sé ljúft að vera heima og dekra við litlu grislingana þá er líka mjög nauðsynlegt að komast á meðal fólks.
Annars alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur og sjá hvað ykkur líkar lífið vel í Danaveldi
Knús í krús
Alda
Alda (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 15:53
Hey you sko, bara snilld hjá þér að fara að vinna með old people...lærir dönsku brandaranna á þeim. Já mér drullu langar að koma í nóv....ætlaði nú bara að troða mér inn á ykkur eða Kollu*hvolpa augu*. En þetta er allt í bígerð sko.....farið fram og til baka kostar 15990 29okt-2nóv, en 24880 2-6 nóv..er að spekuglera í þessu. Mundi koma einn....ef ég þori því. Það væri svo typical me að taka vitlausa lest frá Köben til Jyllands að ég gæti þess vegna tekið lest til Marókkó...annað eins hefur nú gerst. Góða helgi og hafið það gott. knús knús.
Guðmundur Þór Jónsson, 12.10.2007 kl. 16:33
Gangi þér vel mín kæra, hvað sem þú tekur þér fyrir hendur í Danaveldi, mun verða þeim tíl góðs, er þú vinnur með... ekki spurning.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.10.2007 kl. 22:52
glæsilegt, til hamingju með djobbið, ef ég þekki þig rétt, þá áttu nú eftir að skila til baka og meira en það mín kæra :)
þú ættir að læra nokkra århus-brandara allavega...
hilsen, elsa
elsa (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 17:08
Takk elskurnar....gott að finna að þið hafið trú á mér
Berta María Hreinsdóttir, 15.10.2007 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.