18.10.2007 | 17:33
Örmagna og örvæntingarfull....
Þá er minn fyrsti vinnudagur búinn og ég er gjörsamlega búin á því. Ekki það að vinnan sjálf hafi verið svona erfið, heldur er heilinn á mér brunninn yfir!!! Ég talaði enga ensku í dag, bara brenglaða dönsku með sænsku ívafi og íslensku inn á milli.....sem var ekki alveg að gera sig.
Það sem mér fannst samt verra var að skilja ekki meira af því sem var sagt við mig. Ég þurfti að innbyrða svo margar upplýsingar um skjólstæðingana mína og um öll verkin sem þarf að gera, allt á dönsku og er ég fullviss um að ég hef misskilið helminginn af því.
Í lok vinnudagsins var ég mjög glöð með að vera komin með vinnu en mjög pirruð yfir lakri dönsku kunnáttu minni þannig að við hjónin skelltum okkur á bókasafnið á leiðinni heim og fengum okkur bók og hljóðbækur á dönsku og er markmið næstu vikna að hlusta og lesa dönsku á kvöldin. Annað gengur bara ekki.....ég VERÐ að læra dönsku og það STRAX!!! Við fórum líka á kommúnuna til að fá skattkort fyrir mig, en þá var okkur vísað annað og þegar við loksins komum þangað þá vorum við ekki skráð gift í kerfinu þeirra þannig að við eigum að reyna aftur á morgun (kemur á óvart!!).
Allavegana.....mér var strax boðin föst staða í vinnunni í dag, kvöldvaktir og full vinna og ætla ég að skella mér á það næstu mánuði. Ákvað að henda mér út í djúpu laugina og vonast til að geta svamlað í land, allavegana troðið marvaða og vonast eftir björgunarhringjum hér og þar.
Er það ekki bara málið??!!
Tenglar
ERTU AÐ KOMA TIL HORSENS?
Gisting og afþreying í Horsens og nágrenni
- Matsby legepark Líkt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík
- Gamli bærinn í Aarhus
- Randers regnskov Ótrúleg upplifun
- Tívolí í Aarhus
- Djur sommerland Ómissandi
- Givskud....dýragarður Frábær dýragarður og leiksvæði
- Legoland Allir þurfa að fara þangað allavegana einu sinni
- Gistihús Fínt fyrir hóp eða stóra fjölskyldu
- Eddugisting Frábært að gista þarna:)
VINIR MÍNIR
Hvað er maður án góðra vina??
FJÖLSKYLDAN
Þeir nánustu**
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæhæ... glæsilegt að vinnan gekk vel.. þú átt sko eftir að massa dönskuna Berta mín... er ótrúlega fljótt að koma... Gangi þér áfram vel.. og nú er bara að taka fram danskar ástarsögur og kúra upp í rúmi...;)
kær kveðja
Hobba
Hobba (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 19:30
Hæ hæ. Glæsilegt að heyra. Danskan kemur áður en þú veist af. Gott hjá ykkur hjónunum að tala dönsku...væri til að heyra rifrildi á dönsku
. Gangi þér vel með dönskuna og ykkur vel að láta þá vita að þið eruð GIFT og dönskuna. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 18.10.2007 kl. 22:15
Þið eruð algjörar hetjur.
Elín Hulda (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 14:20
Elsku Berta mín
Gaman að heyra að þú ert byrjuð að vinna. Gott að heyra að allt gekk vel firsta daginn. Þegar ég byrjaði að vinna hérna í London þá var ég að brenna út að vera ekki að skilja alveg en núna eins og innfædd með hreim hahhaha. Þetta á allt eftir að ganga vel, ég tók ástabækur á ensku og er núna í skólabókunum. Heyrumst
Þórunn guðrún
Þórunn Guðrún (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 15:12
Det er da vanskeligt nok at begynde et nyt arbejde og snakke sit eget moders-sporg, end ikke i et fremmed land - med et fremmed sprog...Uha. Du er da virkelig en dygtig pige, Berta, og held og lykke til!!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.10.2007 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.