21.10.2007 | 15:40
Heill tugur!!!
Fyrir nákvæmlega 10 árum (og 15 kílóum) síðan byrjuðum við Raggi saman sem "kærustupar". Frekar fyndið að hugsa til þess, en á þessum tíma höfum við búið á Húsavík, Fossvogi, Árbænum, Breiðholti, Grafarvogi og nú í Horsens. Við höfum verið trúlofuð í tæplega 9 ár og gift í þrjá og hálfan mánuð. Ég hefði ekki getað fundið betri lífsförunaut en hann Ragga minn og veit ég hreinlega ekki hvar ég væri ef við hefðum ekki kynnst. En við höfum notað daginn í dag í að keyra um Horsens og nágrenni, skoðað nýbyggingar og látið okkur dreyma um fallegt einbýlishús með garði og fallegu útsýni. Við reyndar fundum eitt glæsilegt "draumahús" og fórum á netið til að skoða verð og urðum fyrir sjokki....enda 15 miljónum dýrara en við áttum von á. En það er alltaf gaman að láta sig dreyma**
Í kvöld ætlar Raggi að bjóða mér og Hermanni út að borða á Jensen´s böfhus í tilefni dagsins:)
Við (alltaf jafn eðlileg) í byrjun okt.
Tenglar
ERTU AÐ KOMA TIL HORSENS?
Gisting og afþreying í Horsens og nágrenni
- Matsby legepark Líkt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík
- Gamli bærinn í Aarhus
- Randers regnskov Ótrúleg upplifun
- Tívolí í Aarhus
- Djur sommerland Ómissandi
- Givskud....dýragarður Frábær dýragarður og leiksvæði
- Legoland Allir þurfa að fara þangað allavegana einu sinni
- Gistihús Fínt fyrir hóp eða stóra fjölskyldu
- Eddugisting Frábært að gista þarna:)
VINIR MÍNIR
Hvað er maður án góðra vina??
FJÖLSKYLDAN
Þeir nánustu**
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ. Rosalega gaman að hugsa um tugina. En ef þið hefðuð lagt 1000 krónur fyrir á mánuði í öll þessi ár þá ættuð þið örugglega fyrir húsinu núna, enn alltaf gott að dreyma. Já, þið passið ótrúlega vel saman!!!! Skemmtið ykkur rosalega vel í kvöld og hafið það gott. koss knús.
P.S. Ef þú hefðir ekki byrjað með Ragga, værum við þá ekki bara saman núna..múhahaha
Guðmundur Þór Jónsson, 21.10.2007 kl. 16:55
Elsku Berta og Raggi.... vonandi hafið þið fengið extra góðan mat og dekur á böfhúsinu í kvöld:)
Sjáumst vonandi í fyrramálið Berta mín
Kolbrún Jónsdóttir, 21.10.2007 kl. 20:14
Til hamingju með daginn, þetta er ótrúlegat þegar hugsar til baka. Njótið matarinns.
Kær kveðja frá London
Þórunn guðrún (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 22:18
Elsku Berta og Raggi
Innilega til hamingju með daginn... maturinn hlýtur bara að hafa verið góður á Jensens... sá staður klikkar aldrei :)
kv
úr kuldanum á klakanum
Hobba (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 22:47
Takk fyrir dúllurnar mínar.....jú maturinn var snilld eins og við var að búast:)
Berta María Hreinsdóttir, 22.10.2007 kl. 07:37
Til lukku með árin 10 :)
Eru margir Jensen's staðir? Vinkona mín er búin að mæla með þessum stað við mig, en þá í Köben. Annars lendi ég í köben eftir nákvæmlega 9 daga :) Ohh hlakka til að sjá þetta land sem allir sem maður kynnist flytja til!!
Arna V. (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 12:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.