2.3.2008 | 21:30
Skemmtileg helgi og ABBA showið búið
Strax komið sunnudagskvöld og frábær helgi afstaðin. Eftir hádegi í gær fórum við fjölskyldan í heimsóknir, fyrst til Rakelar og Svavars og svo til Kollu og Hlyns. Síðan fór ég heim til að setja á mig andlitið, slétta hárlufsurnar og klæða mig í sómasamlega larfa, enda langþráður dagur með tilheyrandi Abba showi runninn upp!!
Við Rakel og Kolla vorum búnar að ákveða að fara út að borða á Macies fyrir Abba showið en gleymdum að vera svolítið skynsamar og panta borð þannig að þegar þangað var komið þá var allt fullbókað....greinilega fleiri fengið sömu hugmynd og við!! En eftir labb um miðbæinn og 5 tilraunir inn á veitingarhús þá enduðum við á kínverskum eða tælenskum stað. Fínasti staður með góðum mat þannig að ekki fórum við svangar á Abba showið.
Þrátt fyrir að við höfum skemmt okkur konunglega á sýningunni þá verð ég að viðurkenna að við urðum fyrir pínu vonbrigðum. Auðvitað vorum við búnar að gera okkur miklar væntingar og allt það, en staðreyndin var nú samt sú að söngvararnir voru ekki í þeim klassa sem ég átti von á. Sumir voru með svo kraftlausar raddir að varla heyrðist í þeim. Aðrir voru greinilega orðnir þreyttir og raddböndin á síðasta snúning, sem er nú kannski ekki nema von þar sem þetta var sýning númer trilljón og eitt og þar af önnur þennan dag. Utan við sýninguna sjálfa þá voru sætin alveg hörmung.....grjóthörð og þar sem við sátum fremst á svölunum þá var handriðið beint í sjónlínunni þannig að ekki var hægt að sitja nema hokinn eða niðurfallinn í sætið til að sjá á sviðið. Ekki alveg að gera sig fyrir ólétta konu með stóran rass!!
En þrátt fyrir þessi vonbrigði þá var kvöldið með þeim Kollu og Rakel alveg meiriháttar og nutum við þess í botn að vera án barna og bura:) Takk fyrir kvöldið stelpur**
Dagurinn í dag hefur einnig verið mjög fínn....byrjuðum í letikasti fram að hádegi, kíktum þá í Fötex og svo komu Steinunn, Hallur og Áróra í pönnsukaffi sem endaði í pizzupartýi:) Alltaf jafn gaman að fá góða vini í heimsókn....þá verður dvölin í Danmörku svo miklu auðveldari fjarri fjölskyldunni á Fróni.
Í fyrramálið er síðan 19. vikna sónarinn...já eða 22. vikna....Danir ekkert að stressa sig á þessu frekar en öðru!! Hlakka mikið til að sjá krílið mitt og bið fyrir því að allt líti eðlilega út.
Farið varlega inn í nýja viku lömbin mín**
Tenglar
ERTU AÐ KOMA TIL HORSENS?
Gisting og afþreying í Horsens og nágrenni
- Matsby legepark Líkt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík
- Gamli bærinn í Aarhus
- Randers regnskov Ótrúleg upplifun
- Tívolí í Aarhus
- Djur sommerland Ómissandi
- Givskud....dýragarður Frábær dýragarður og leiksvæði
- Legoland Allir þurfa að fara þangað allavegana einu sinni
- Gistihús Fínt fyrir hóp eða stóra fjölskyldu
- Eddugisting Frábært að gista þarna:)
VINIR MÍNIR
Hvað er maður án góðra vina??
FJÖLSKYLDAN
Þeir nánustu**
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 80764
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Ásgeirinn veittur á Skjaldborg
- Óttast að þurfa loka starfseminni um mánaðamót
- Hættan ekki mikil en er þó til staðar
- Takmarkaðar upplýsingar um herþjónustu Íslendinga
- Launahækkun Jóns Gnarr út um þúfur
- Fylgið í sögulegri lægð og mikil vinna fram undan
- Möguleikarnir kynntir fyrir strákum og stálpum í HR
- Ég er ótrúlega þakklátur: Næstu skref snúin
- Íbúar sýni aukna aðgæslu utandyra í Ólafsfirði
- Dúxar ME með lokaverkefni í hannyrðum
Erlent
- Pútín ræddi við páfann
- Pútín mun hefna sín
- Kallar eftir frekari refsiaðgerðum
- Þýskaland mun halda áfram að styðja Ísrael
- Svíar semja við Eista um að taka við glæpamönnum
- Segja Úkraínumenn hafa hafnað tillögu um vopnahlé
- Búlgaría tekur upp evru
- Gætu svipt Andrew Tate ríkisborgararétti
- Söguleg fækkun fæðinga í Japan
- Afar erfitt að semja við Xi
Fólk
- Skelfilegar afleiðingar blóðhefnda
- Er Reeves búinn að festa ráð sitt?
- Meghan Markle fagnar afmæli dóttur sinnar
- Minntist eiginmannsins í fallegri færslu
- Jessie J greindist með brjóstakrabbamein
- Af listum: Gott er með ásum
- Sonur Jolie og Pitt ofurölvi á hótelbar
- Bréf úr fortíðinni
- Yfirgaf sviðið í líkkistu
- Aron Kristinn segist hættur í ClubDub
Viðskipti
- Slaki á vinnumarkaðnum eftir spennutímabil
- Bílasala eykst og rafbílar leiða
- Ekki hægari hagvöxtur síðan í kórónuveirufaraldrinum
- Center Hotels hljóta Græna lykilinn
- Tækifæri í nýmarkaðsríkjum nú
- Stærri bankar styrkja almenning og hagkerfið
- Greiddi 25 milljarða fyrir hönd ríkissjóðs
- 23% meira fjárfest í nýsköpun 2024
- YAY og Landsbankinn stofna Yayland
- Íslandsbanki skoðar tækifæri erlendis
Athugasemdir
Kvitt og kveðja
Vonandi hefur kúlubúinn það gott
Anna Gísladóttir, 2.3.2008 kl. 22:52
Ææ, ekki gaman á svna Abba show-i. Ég ætla á Abba í New York, eins gott að ég geri engar væntingar. Glæsileg helgi hjá ykkur. Alltaf gott að fá góða vini í heimsókn. Gangi þér vel á morgun og eigið þið sömuleiðis góða viku framundan. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 2.3.2008 kl. 23:27
Takk sömuleiðis fyrir kvöldið:) Það er voða gaman að skreppa aðeins út án barna, þar er ég sammála þér:)
Gangi þér vel í sónarnum.... hlakka til að sjá myndir
Kolbrún Jónsdóttir, 3.3.2008 kl. 09:01
Gangi þér vel í sónarnum.
Elín Hulda (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 10:29
Takk fyrir skemmtilegt kvöld Berta mín :)
Rakel Linda (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 13:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.