21.4.2008 | 20:02
Hamburg er málið!!
Um kvöldmatarleytið í gær komum við heim eftir alveg snilldar helgi í Hamburg. Við lögðum af stað í bítið á föstudaginn og vorum komin fljótlega eftir hádegið á hótelið okkar þar sem við skráðum okkur inn og hentum inn töskunum. Því næst brunuðum við í miðbæ Hamburgar þar sem við töltum um göngugöturnar og spókuðum okkur í ekkert allt of góðu veðri. Miðborgin er mjög snyrtileg, með stórum og flottum húsum og verslunarmiðstöðvarnar voru þónokkrar með hundruði verslana. Við lögðum bílnum okkar í bílastæðahús í stórri verslunarmiðstöð á göngugötunni og stærðin á "mollinu" var þvílík að við ætluðum aldrei að finna útgönguleiðina. Það sama átti við þegar við fórum að sækja bílinn aftur.....við þurftum tvær tilraunir inn í "mollið" og gott rölt þar inni til að finna bílastæðin!! Eftir fínt rölt, með viðkomu á Starbucks (ójá....það er Starbucks í Hamburg) fórum við upp á hótel og löbbuðum svo yfir götuna á KFC (jebb....KFC var hinum megin við hótelið) þar sem við fengum okkur borgara í kvöldmat.
Eftir frekar erfiða nótt með tilheyrandi næturbrölti af minni hálfu og litlum svefni þá vaknaði Hermann klukkan 7 og gaf pabba sínum afmælispakka og koss í tilefni dagsins. Því næst var farið í morgunmat þar sem við gátum borðað okkur pakksödd. Deginum var svo eytt í stærsta dýragarði Evrópu....Hagenbeck tiergarten. Við vorum komin þangað 10:30 og byrjuðum á því að skoða vatnaveröldina, en það er nokkurs konar neðansjávardýragarður með hinum ýmsu sjávardýrum og einnig var þar inni regnskógur með ýmis konar skriðdýrum, leðurblökum og fleirum ógeðfelldum dýrum. Í dýragarðinum sjálfum voru öll helstu dýr jarðar, fílar, mörgæsir, kengúrur, ísbjörn, beljur og allt þar á milli. Klukkan 17 vorum við loksins búin að ganga allan garðinn en samt stoppuðum við bara einu sinni til að fá okkur að borða. Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn fegin að sjá bílinn minn ....gjörsamlega búin á því eftir 6 tíma labb!! Og Hermann...jahhh....þreyttur er ekki nógu sterkt orð til að lýsa honum. Hann sofnaði á nokkrum sekúndum eftir að hann kom í bílinn.
Eftir gott bað á hótelinu þá fórum við út að borða á veitingarstað sem var við hliðina á hótelinu. Sá staður hét Einstein og vorum við svo heppin að þjónninn okkar talaði fína ensku þannig að hún gat þýtt fyrir okkur matseðilinn. Það er nefnilega svo merkilegt með Þýskaland, að það er nánast hvergi hægt að fá enska matseðla og alveg hending ef maður hittir á fólk sem talar ensku. Við t.d. lentum í vandræðum í miðasölunni í dýragarðinn því konan skyldi ekki stakt orð í ensku og hvergi enskar leiðbeiningar í öllum dýragarðinum.
Á sunnudaginn þegar við vorum búin að borða morgunmat og skrá okkur út af hótelinu þá fórum við í Miniatura wonderland sem er nokkurs konar safn með heilu bæina, borgirnar, Alpana og annað landsslag í smækkaðri mynd. Þvílík upplifun og hélt Hermann varla vatni yfir þessu, enda smágerðar lestar á fullri ferð út um allt. Eftir rölt um safnið þá kíktum við aftur í miðbæinn, fórum út að borða á ekta ítölskum stað og nutum lífsins áður en við lögðum í hann aftur heim.
Semsagt......frábær helgi í alla staði og mælum við svo sannarlega með Hamburg.
Tenglar
ERTU AÐ KOMA TIL HORSENS?
Gisting og afþreying í Horsens og nágrenni
- Matsby legepark Líkt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík
- Gamli bærinn í Aarhus
- Randers regnskov Ótrúleg upplifun
- Tívolí í Aarhus
- Djur sommerland Ómissandi
- Givskud....dýragarður Frábær dýragarður og leiksvæði
- Legoland Allir þurfa að fara þangað allavegana einu sinni
- Gistihús Fínt fyrir hóp eða stóra fjölskyldu
- Eddugisting Frábært að gista þarna:)
VINIR MÍNIR
Hvað er maður án góðra vina??
FJÖLSKYLDAN
Þeir nánustu**
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að heyra að þetta hafi verið svona vel heppnað .
Kristbjörg Þórisdóttir, 21.4.2008 kl. 20:10
Æðislegt hjá ykkur. Gott að vita að Hamburg er málið. Ég er að gæla það við mig að flytja til Berlínar, er að skoða íbúðir á þar á Remax.com. Gott að þið nutuð ykkar í botn. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 22.4.2008 kl. 22:36
æðislegt að heyra hversu gaman þetta var :)
Megum við koma til ykkar í lok júlí? Hentar það fyrir ykkur? :D hehe
Lovjú
Karolína
Karolína (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.