22.8.2008 | 20:25
Frá kírópraktors til barnalæknis!
Fórum og hittum frábæran kírópraktor í dag sem skoðaði Sigga Kalla í bak og fyrir. Eftir nána stoðkerfisskoðun kallaði hann á samstarfskonu sína og bað hana um að koma líka með sitt álit.
Niðurstaðan er sú að Siggi Kalli er með slappa vöðva aftan á hálsi sem þau gátu ekki gefið skýringar á. Þrátt fyrir að við séum ekki búin að vera nógu dugleg að láta hann liggja á maganum þá skýrir það ekki af hverju vöðvarnir eru svona, enda er Siggi mikið á handlegg og þá eiga hálsvöðvarnir að styrkjast líka. Því þarf litla skinnið að fara til barnalæknis til að útiloka aðra þætti áður en eitthvað verður aðhafst hjá kírópraktornum. En einnig fann kírópraktorinn spennu hægra megin í hálsinum á honum (sem útskýrir kannski af hverju hausinn leitar yfirleitt til hægri), á milli herðablaðanna og neðst í bakinu á honum sem hann vill fá að vinna með þegar barnalæknir er búinn að gera sitt. Við bíðum því núna eftir símtali frá barnalækni eða okkar eigin lækni þegar hann er búinn að fylla út beiðnina til barnalæknisins en kírópraktorinn vildi sjálfur senda okkar lækni bréf um ástandið og biðja um flýtimeðferð. Í Danmörku er ekki hægt að fara beint til sérfræðinga og þarf því allt að fara í gegnum heimilislækna fyrst, þeir fylla út beiðni til sérfræðinganna (sem í þessu tilfelli verður barnalæknir. Spurning er svo hvort Siggi fari í sjúkraþjálfun en kírópraktorinn sagði að það væru til sérstakir sjúkraþjálfarar fyrir ungabörn. En við munum samt örugglega fara aftur til þessa kírópraktors líka, hann var alveg frábær og á meira að segja sjálfur barn fætt nokkrum dögum á undan Sigga Kalla:)
Nú er bara að bíða og sjá....vonum bara að þetta sé eitthvað sem hægt verður að þjálfa upp hjá litla prinsinum okkar.
Tenglar
ERTU AÐ KOMA TIL HORSENS?
Gisting og afþreying í Horsens og nágrenni
- Matsby legepark Líkt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík
- Gamli bærinn í Aarhus
- Randers regnskov Ótrúleg upplifun
- Tívolí í Aarhus
- Djur sommerland Ómissandi
- Givskud....dýragarður Frábær dýragarður og leiksvæði
- Legoland Allir þurfa að fara þangað allavegana einu sinni
- Gistihús Fínt fyrir hóp eða stóra fjölskyldu
- Eddugisting Frábært að gista þarna:)
VINIR MÍNIR
Hvað er maður án góðra vina??
FJÖLSKYLDAN
Þeir nánustu**
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fyrstur að kommenta
jibbý
Ragnar Hermannsson, 22.8.2008 kl. 20:28
Vonandi á þetta allt eftir að ganga vel..... Siggi Kalli er svo flottur að hann fer létt með þetta:)
Kolbrún Jónsdóttir, 22.8.2008 kl. 21:13
Frábært að þetta sé komið í réttan farveg og vonandi fær hann hjálp við þessu sem fyrst litli (stóri) kallinn;)
Kv. Steinka og co.
Steinka (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 13:06
Glæsilegt að þetta er komið á rétta leið. Gangi ykkur vel. Hafið það gott.
Guðmundur Þór Jónsson, 23.8.2008 kl. 17:11
Vonandi á þetta allt eftir að ganga vel með prinsinn!!
Bk.Karen og co.
Karen Jóns (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 18:16
Vonandi gengur þetta vel hjá kappanum en hann er að ná Selmu Dóru í þyngd. Hún var 7,5 kg frá 6 mánaða þangað til hún varð 13 mánaða, hehe.
Þú spurðir um kiropraktos þá fór vinkona mín með strákinn sinn þegar hann var á þessum aldri því hann var mikið magakveisubarn og allur svo stífur. Hún vildi meina að það hafi hjálpað honum að fara reglulega. Henni fanst hann rólegri eitthvað á eftir.
Gangi ykkur vel með þetta allt saman
Elín Hulda (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 22:58
Gott að heyra að þetta er allt komið í réttan farveg. Hann verður ekki lengi að klára þetta drengurinn, svo stór og flottur :)
Knús og kossar til ykkar, elsa
elsa (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 11:17
gott að þetta sé komið í réttan farveg !! Vonandi gengur þetta allt saman vel !!
Annars bara stutt kveðja frá Íslandi
sjáumst hressar í næstu viku í Horsens
kveðja
Didda
Didda (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 00:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.