Leita í fréttum mbl.is

Fákurinn mættur á svæðið!!!

Ekki nóg með það að eiginmaðurinn sé með nokkur vel valin húðflúr á handleggjunum, heldur á hann núna  mótorhjól líkaWink  Er ég nokkuð viss um að þessi lýsing hljómar eggjandi í eyrum sumra kvenna......arggggg!!!

En samsagt, Raggi minn er búinn að fá sér vespu!!!
Ég veit ekki ennþá hvað mér finnst um þetta farartæki, en það líkist einna helst slátturvél á tveimur gúmmíum með Nilfisk mótor!! Markmiðið með tryllitækinu er að komast í og úr skóla með litlum tilkostnaði og í leiðinni að gefa mér það frelsi á daginn að ég ráði í hvaða búð ég ferWhistling

Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá kallinn mæta á fáknum, með vígalegan raserhjálm á höfðinu var.....Ómægod, er hægt að vera minna æsandi!!
Það verður bara að viðurkennast að þessi "mótorhjól" eru bara ekkert getnaðarleg, allavegana sé ég ekki alveg fyrir mér að Terminator 2 hefði náð sömu vinsældum með Arnold Schwarzenegger á vespu!!

En allavegana.....fákurinn á eflaust eftir að reynast vel og hver veit.....kannski verður kallinn bara ansi flottur á vespunni næsta sumar í stuttbuxum og ermalausum??!!

vespa_superman.preview


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ingi Adolfsson

Er hann ekki bara "trendsetter"? Töffarinn með tattoo-in á vespunni...Ég er viss um að þetta á eftir að verða vinsælt í Danmörku meðal tattúveraðra töffara...

Tómas Ingi Adolfsson, 20.9.2007 kl. 19:45

2 identicon

Ja, nú verðum við að fá mynd :)  Sé þetta ekki alveg fyrir mér...  Til hamingju með nýjasta fararskjótann, hefði nú getað lánað ykkur hest til að komast í og úr skólanum... bara ef ég hefði nú vitað þetta:)

Elsa (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 00:15

3 Smámynd: Berta María Hreinsdóttir

Takk fyrir hugulsemina Elsa mín....þú kannski kippir hestinum bara með þér næsta sumar þegar þú kemur  Ég skal setja inn mynd mjög bráðlega.

Veistu Tommi.....ég held að þetta gæti alveg orðið ný tíska hér

Berta María Hreinsdóttir, 21.9.2007 kl. 07:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hver er ég?

Berta María Hreinsdóttir
Berta María Hreinsdóttir

Er Húsvíkingur í húð og hár....gift byggingarfræðinema og eigum við tvo fallega stráka . Er þroskaþjálfi og bý í Horsens, Danmörku. Blogga um það sem mér dettur í hug hverju sinni, en sleppi pólítík og öðru sem ég hef takmarkaðan áhuga á!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband