Leita í fréttum mbl.is

Loksins!!!

Maður er ekki maður með mönnum og hvað þá kona með konum nema vera þátttakandi í bloggæði landans og hef ég því ákveðið að prófa að vera "memm".

Ég hef skrifað í vefdagbók sonar míns síðan hann fæddist og er því ekki algjör nýgræðingur á tölvuborðinu en það verður aðeins öðruvísi að skrifa út frá sjálfum sér en ekki út frá upplifun sonarins og um sjálfan sig sem þriðju persónu. 

Ég sé fram á margar tómar klukkustundir á næstunni þar sem ég hangi allan daginn heima með einkasoninn á meðan kallinn umgengst allra þjóða kvikindi í fína skólanum sínum og fer svo líka í boltaleik með stóru íslensku strákunum. Þar af leiðandi ætla ég að nota þennan vettvang bloggsins til að skrá niður mína þanka og ganga....ef einhverjar verða þ.e.a.s:)

En ég semsagt bý í Baunalandinu góða, nánar tiltekið í bæ hestanna á Jótlandi. Hef verið hér í 3 vikur ásamt mínum ektamanni Ragnari og einkasyni Hermanni Veigari. Reyndar býr hér líka góðvinur og "hálfbróðir að nafninu til" hjá okkur núna og næstu 4 vikur en það er hann Hlynur, ektamaður Kollu vinkonu með meiru, og hann er sko alvöru vinur.....var meira að segja orðinn bloggvinur minn áður en ég var búin að setja inn mína fyrstu færslu, hehe:) Takk Hlynur minn**

Læt þessa "kynningu" duga í bili, ætla að hjálpa Hermanni að teikna Óla prik......


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður mágsa!

Ég mun fylgjast spennt með framvindu mála, þú ert magnaður penni og ég vænti gríðarlega góðra pistla hér í framtíðinni (",)

Bjögga (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 15:20

2 identicon

Gott með þig! Blogg getur verið allra meina bót... sérstaklega þegar maður hefur mikinn tíma aflögu! :) ég set þessa síðu á "daglega netrúntinn" og bíð spennt eftir frekari fréttum af þér mín kæra:)

Þórunn Harðar (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hver er ég?

Berta María Hreinsdóttir
Berta María Hreinsdóttir

Er Húsvíkingur í húð og hár....gift byggingarfræðinema og eigum við tvo fallega stráka . Er þroskaþjálfi og bý í Horsens, Danmörku. Blogga um það sem mér dettur í hug hverju sinni, en sleppi pólítík og öðru sem ég hef takmarkaðan áhuga á!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband