Leita í fréttum mbl.is

Ég og símar.......

Ég á ekki marga vini og ekki marga kunningja. En ég á nokkrar góðar vinkonur sem mér þykir alveg rosalega vænt um. En málið er að ég tek nánast aldrei upp símann og hringi í þær!!! Ég hugsa oft til þeirra og kíki daglega, jafnvel oft á dag, á bloggið þeirra ef þær eru með svoleiðis, en það geta liðið margir mánuðir sem ég heyri ekki í þeim í síma. Ég hef alla tíð átt erfitt með að taka upp símann og hringja í vini, ættingja og kunningja. Ég hringi reglulega í mömmu, einstaka sinnum í systur mína en that´s it!!! Það er bara eitthvað við þetta tæki sem fælir mig frá því. Mér finnst gaman að tala í símann þegar einhver hringir til að spjalla og get þá talað og talað.  Sumir halda kannski að ég sé svona nísk....tími ekki að borga símareikninginn.....en það er sko ekki málið, meira að segja get ég hringt FRÍTT í öll heimilissímanúmer á Íslandi núna en það hefur ekki hvatt mig til að hringja meira en áður, þó síður sé!!!
Ég hef misst samband við nokkrar vinkonur í gegnum tíðina út af þessu vandamáli mínu og finnst það miður, ég vona bara að þær góðu vinkonur sem ég á í dag hætti ekki að hafa samband við mig núna þegar ég er flutt í annað land og einu samskiptin möguleg í gegnum síma. 

Þá hef ég létt þessu af mér í eitt skipti fyrir öll.....en enginn er víst fullkominn  Wink 


for0249l


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Þú losnar nú ekki svo glatt við mig, múhaha

Kolbrún Jónsdóttir, 4.9.2007 kl. 19:34

2 identicon

Hey ég á við nákvæmlega við þetta sama vandamál að stríða. Er með bilaða símafóbíu, hvað er málið, þetta er óþolandi. Finnst bara alveg glatað að hringja, hringdi samt í alla nánustu áðan, var búin að draga það geðveikt samt, samt finnst mér gaman að tala þegar ég loksins kem mér í það.

En bestu vinkonur mínar eru farnar að skilja þetta vandamál, svo mín kæra held ég að kaffiboð og bloggið sé grundvöllur okkar samskipta í lífinu, múahhahahahha.

Já eða matarboð, á föstudaginn segirðu???

 Ég hef ekki heldur séð rjómasósu neins staðar, en whiskysósu í svona 900 útgáfum hérna:)

Og á ég að segja þér eitt enn, bara í trúnaði samt, ég er stundum, bara stundum, með svo mikla símafobíu að ég get ekki pantað pizzu, og hvað þá hringt í bankann, ég svitna við tilhugsunina, hahaahh, ég er meingölluð.

Enn á morgunn verðum við mjóar, engin spurning, kl. svona 2 var það ekki??

Kv.  Ra.21

Steinka stuð (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 20:09

3 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Ég ætla að vona að það verði pláss fyrir fleiri í þessum matarklúbbum í Horsens   Mér finnst næstum því að ég sé að missa af lestinni í rigningunni hér í Reykjavík

Kolbrún Jónsdóttir, 4.9.2007 kl. 20:56

4 identicon

Elsku Berta. Hvers konar vinur telja hversu oft er hringt í mann!! ég pæli aldrei í þessu. Þannig að þótt sem að ég heyri ekki í þér í 15 ár þá áttu alltaf sama stað IN MY HEART Hlakka til að sjá ykkur eftir 300 daga

Guðmundur Þór Jónsson (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 21:53

5 identicon

Heyrðu Bästis! Þetta er bara eins og talað út úr mínu hjarta!! Ég hef átt við símahræðslu að stríða síðan ég var að bjóða í ferminguna mína, þá laug ég því að þessi og hinn hefði ekki verið heima því ég þorði einfaldlega ekki að hringja! :) (af hverju ekki voru bara send boðskort skil ég ekki enn í dag... fyrir utan það að ég hefði aldrei átt að láta ferma mig en það er önnur saga sem við verðum sennilega seint sammála um;)

Eniveis, ég hugsa til þín oft á dag og hver veit nema ég grípi einn daginn í tólið (símtólið Berta!) og slái á þráðinn!

Ha det bra bra og við heyrumst!

Þórunn og Hörður Mar biður að heilsa (sem fór að sofa kl. 22 í kvöld!!!)

Þórunn Harðar (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 23:31

6 Smámynd: Berta María Hreinsdóttir

Váá hvað ég á góða vini...þið eruð yndisleg

Berta María Hreinsdóttir, 5.9.2007 kl. 05:38

7 identicon

Þessi bloggfærsla gæti hafa komið orðrétt úr mínum munni (puttum??), ekkert skrýtið að við höfum ekki haldið brjáluðu símasambandi fyrst við erum báðar svona :-)

Ég á hins vegar mjög auðvelt með að skrifa, svo nú er spurning um að taka upp e-mail samband!? Hentu á mig einum pósti svo ég fái netfangið hjá ykkur, ég get þá sent ykkur eins og einn fréttapistil á viku :-)

Bjögga (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 07:52

8 identicon

Hæ mega bloggari.

 Gaman að sjá þessa síðu. Vona nú samt að þú getir látið okkur vita um netfangið ykkar. Og jafnvel símanúmer, ef að það er ekki von á hringingu frá þér =(

Bestu kveðjur af víkinni

Harpa og Siggi (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hver er ég?

Berta María Hreinsdóttir
Berta María Hreinsdóttir

Er Húsvíkingur í húð og hár....gift byggingarfræðinema og eigum við tvo fallega stráka . Er þroskaþjálfi og bý í Horsens, Danmörku. Blogga um það sem mér dettur í hug hverju sinni, en sleppi pólítík og öðru sem ég hef takmarkaðan áhuga á!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband