Leita í fréttum mbl.is

Kærkomið!!

Í gær kom Raggi heim um hádegi til að hleypa mér úr básnum mínum. Ég hef verið í Horsens síðan 11. ágúst og ekkert farið án einkasonarins og þegar mér var boðið að koma með í "stelpuferð" til Århus, þá varð ég alveg uppfull af spenningi:)

Við Kolla fórum semsagt um hádegi með lestinni og hittum hana Kiddu okkar á lestarstöðinni í Århusum. Við gengum svo niður "Strikið" í miðbænum og hittum þar vinkonu Kiddu, hana Gunnhildi (sem er líka gömul vinkona Kollu) og vinkonu Gunnhildar, hana Önnu. Við Kolla, Kidda, Anna og Gunnhildur rötlum aðeins um Strikið en settum svo inn á fínan veitingarstað og fengum okkur öl og með því.

Þetta var alveg frábær "kvennafrísdagur" og var mikið spjallað þrátt fyrir að tíminn hafi ekki verið langur. Við Kolla vorum semsagt komnar aftur heim um 5 leytið en alveg í skýjunum yfir þessari skemmtilegu kvennaferð.

Vonandi eigum við Kolla eftir að gera þetta oftar, sérstaklega þegar strákarnir verða farnir á leikskóla.......að skella okkur upp í lest og spóka okkur um í Århusum, yndisleg borg með snilldar verslunar/göngugötu bara rétt við lestarstöðina.

 Kolla og Kidda að rölta Gunnhildur og Anna í góðum gírVið stöllurnar þrælhressar

Takk fyrir daginn stelpur**


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan daginn Berta mín, þetta var flott hjá ykkur Kollu og auðvitað eigið þið eftir að fara margar svona ferðir, þið eruð svo klárar þið getið allt Berta mín. Bið að heilsa öllum.  kveðja þín mamma.

Sigríður (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 10:31

2 identicon

Hæ Berta

Gott að heyra að lifið gengur vel hjá ykkur i Horsen Ég er sammála þér með

 ärhus mjög skemmtileg göngugata og fínar búðir

Kannski að maður kíkji i heimsókn .)kv Linda og co

Linda (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 15:35

3 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Takk fyrir alveg frábæran dag Berta mín. Hlakka til að fá ykkur aftur... Svo er auðvitað líka spurning að ég komi í kvennaferð til Horsens .

Kristbjörg Þórisdóttir, 31.10.2007 kl. 17:30

4 Smámynd: Berta María Hreinsdóttir

Auðvitað Kidda.....það er nú aldeilis fín verslunargata hér líka....með "molli" og allt Stefnum á að þú komir í eina "kvennaferð" fyrir jólin, er það ekki?

Linda mín.....þú ert að sjálfsögðu alltaf velkomin til okkar....bara sem oftast

Takk mamma mín

Berta María Hreinsdóttir, 31.10.2007 kl. 18:01

5 identicon

Frábært að komast af básnum svona endrum og eins :)

Er að ná fullum tökum á pollýönnuleiknum aftur eftir smá lægð í sumar. Ef þig vantar "kennslu" þá skaltu bara hafa samband ;)

Hrekkjavökukveðja úr sólinni

Hulda (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 21:44

6 Smámynd: Guðmundur Þór Jónsson

Glæsilegt hjá ykkur að hafa gert þetta. Styð þetta 100%!! Hafið það gott.

Guðmundur Þór Jónsson, 31.10.2007 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hver er ég?

Berta María Hreinsdóttir
Berta María Hreinsdóttir

Er Húsvíkingur í húð og hár....gift byggingarfræðinema og eigum við tvo fallega stráka . Er þroskaþjálfi og bý í Horsens, Danmörku. Blogga um það sem mér dettur í hug hverju sinni, en sleppi pólítík og öðru sem ég hef takmarkaðan áhuga á!

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband