Leita í fréttum mbl.is

Svona er lífið.....

Árið byrjar vel hjá okkur hjónunum......þvottavélin dó með látum þann 2. svo ekki var annað hægt en að fjárfesta í nýrri. Lánið í óláninu er þó að akkúrat núna eru útsölur í fullum gangi þannig að við náðum góðri vél á fínum afslætti, Bloomberg, eins og þurrkarinn okkar, og með sama útlit. Algjör tilviljun að svoleiðis vél var á útsölu í gær þegar við fórum í Punkt 1 að skoða vélar. Ekki þorðum við að bíða með að kaupa hana því ekki var öruggt að hún yrði á afslætti nema í einn dag. Nýja vélin er á leiðinni hingað núna en Raggi og Hallur vinur hans fóru að sækja hana og henda hinni. Sem betur fer fæ ég vélina í dag því Hermann er með í maganum og því þörf á að þvo "skemmtilegan" þvott í kvöld. Gamla vélin er nú ekki svo gömul, rétt rúmlega 8 ára, en hefur í gegnum tíðina þurft að þvo heilmikið magn af skrúfum, nöglum og öðru drasli sem hafa leynst í vinnubuxunum hans Ragga:) Hún hefur aldrei bilað og fór því með krafti núna. Blessuð sé minning hennar)

Við vorum þokkalega heppin í gær í bænum.......byrjuðum á því að fara í Bilka með flöskur í endurvinnsluna og lögðum á bílastæði Bilka sem er við hliðina á Punkt1. Um leið og við löbbuðum inn þá föttuðum við að við höfðum gleymt að stilla P-skífuna. En ef hún er ekki stillt þá getur maður fengið 505 dkr. sekt (eða um 6000 ísl. kr)!! Ég sagði Ragga að við skyldum henda inn flöskunum og stilla skífuna svo áður en við færum í Punkt1, við yrðum enga stund. En akkúrat þegar við löbbum að bílnum (eftir um 5 mín.) þá er verið að skrifa sekt á bílinn!! Ég sagði við konuna að ég hafi verið að koma og hlaupið út þegar ég mundi eftir skífunni. Sem betur fer var konan enn í jólaskapinu og sagði "det er i orden".  Slapp við sekt í þetta sinn:)

Annars er bara fín helgi framundan. Við tókum niður jólatréð í dag, það var orðið ansi slappt og er planið að ég fari á morgun til Árósa með Kollu. Við ætlum að skoða afmælisgjöf handa Hermanni og Emil í Toysrus og kíkja í kaffi til  hennar Kiddu okkar:) Svo verður jólaskrautið tekið niður á sunnudaginn og farið í heimsókn til Rakelar og co.....þau eru að koma heim annað kvöld eftir jólafrí á Íslandi. Við hlökkum mikið til að hitta þau aftur:)

Nóg í bili......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Þór Jónsson

Berta, þú ert svo mikið lukkudýr....best að ég komi með óhreinan þvott til þín svo ég sjái hvað þessi þvær vel

Guðmundur Þór Jónsson, 4.1.2008 kl. 23:53

2 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Ástarþakkir fyrir komuna í dag. Það var yndislegt að fá ykkur eins og alltaf. Súpuknús frá Kiddu.

Kristbjörg Þórisdóttir, 5.1.2008 kl. 16:34

3 identicon

Hæ hæ

Kominn heim :) Velkominn í heimsókn...

Það er gott að vera kominn heim þrátt fyrir hvað það var erfitt að keðja fólkið sitt...en nú tekur alvaran við, skólinn og vinna

Sjáumst Rakel

Rakel Linda (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 11:12

4 identicon

Hæ elsku Berta, Raggi og Hemmi töffari og gleðilegt árið....Dugleg að vera svona alein og yfirgefin yfir hátíðirnar  Alltaf gaman að koma inná síðuna hjá ykkur, þú ert svo dugleg að blogga Berta mín, en ég ekki eins dugleg að kvitta... Hafið það sem allra best úti og við sjáumst síðar á Víkinni góðu. Knús...Jóna og co

Jóna Björg Pálmadóttir (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 22:00

5 identicon

Gleðilegt ár !

Mikið er gaman að skoða bloggið ykkar :) Þú gerir allt svo vel Betra mín

Mér finnst svooo fallegt að heyra hvað þú metur þína nánustu og sambandið við þá. Skynsöm stelpa: Gott að sjá að mamma og pabbi eru buin að koma og þú komin í Íslendingafélagið Kveðja Hulda

Hulda (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 23:08

6 Smámynd: Anna Gísladóttir

Það er agalegt þegar þessar þvottavélar taka upp á því að hrökkva upp af þegar síst skyldi !  Mín gaf upp öndina á NÝÁSDAG !  En ég fékk nýja 7 KÍLÓA vél daginn eftir þannig að ekki er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott
Hafið það gott ..... og gleðilegt ár !

Anna Gísladóttir, 7.1.2008 kl. 02:15

7 Smámynd: Anna Gísladóttir

Ahhhh gleymdi einu ..... Sá sem tók brúðkaupsmyndirnar ykkar, heitir hann nokkuð Hjalti ? 

Anna Gísladóttir, 7.1.2008 kl. 02:16

8 Smámynd: Berta María Hreinsdóttir

Takk þið öll, það er virkileg vítamínsprauta að lesa commentin ykkar:)

Jú Anna mín....hann heitir Hjalti, hvernig vissirðu það? Var hann líka hjá ykkur??

Berta María Hreinsdóttir, 7.1.2008 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hver er ég?

Berta María Hreinsdóttir
Berta María Hreinsdóttir

Er Húsvíkingur í húð og hár....gift byggingarfræðinema og eigum við tvo fallega stráka . Er þroskaþjálfi og bý í Horsens, Danmörku. Blogga um það sem mér dettur í hug hverju sinni, en sleppi pólítík og öðru sem ég hef takmarkaðan áhuga á!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband