Leita í fréttum mbl.is

Ástæðan fyrir því að maður verður svona klár eftir nokkra bjóra!

Ég veit að þið hafið öll heyrt eða lesið um þessi fræði áður, en ég hef ekki séð neinn útskýra þetta eins vel og hinn alvísa Cliff Calvin í Staupasteini.
Cliff Calvin var að útskýra Buffala-kenninguna fyrir vini sínum Norm og það gekk svona fyrir sig:
"Sjáðu nú til Norm, þetta virkar svona....

Buffalahjörð getur aðeins farið jafn hratt og hægasti buffalinn í hjörðinni.
Og þegar veitt er úr hjörðinni eru það hinir hægustu og veikustu aftast í hjörðinni sem eru drepnir fyrst.
Þetta náttúrulega val er mjög gott fyrir hjörðina í heild sinni því að með reglulegum drápum á veikustu og hægustu einstaklingunum batnar heilsufar hjarðarinnar og hraði hennar.
 
Á sama hátt má segja að mannsheilinn geti aðeins unnið eins hratt og hægustu heilasellurnar leyfa.
Eins og við öll vitum þá drepur alkohól heilasellur en eðlilega drepur það hægustu og veikustu sellurnar fyrst.
Á þennan hátt veldur regluleg inntaka áfengis því að veikari sellurnar drepast og þar með því að heilinn verður hraðvirkari og skilvirkari.
Þetta er ástæðan fyrir þvi að maður verður svona klár eftir nokkra bjóra:)

Ætli ísbjörninn í Skagafirði hafi villst svona???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Þór Jónsson

Eins gott að ég drekk ekki bjór. En minnigar streyma um Staupastein væri alveg til í að fara þangað aftur. Hafið það gott.

Guðmundur Þór Jónsson, 4.6.2008 kl. 23:22

2 identicon

Ha ha ha ha! Góður! Held ég segi Gulla þetta samt ekki

Hulda (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 02:25

3 identicon

Þetta er sko orð að sönnu!
Cliff veit sko sínu viti... hihi:)
En Berta, nú skora ég á þig að sýna okkur eina góða bumbumynd!  Fyrst ég missi af þessu öllu saman er nú alveg lágmark að setja inn myndir... erþakki!?  
Bestu kveðjur af Baughólnum:)
Þórunn & co.

Þórunn Harðar (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 10:33

4 identicon

HAHAHAHA góður þarf að byrja drekka bjór oftar.

Þórunn Guðrún (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hver er ég?

Berta María Hreinsdóttir
Berta María Hreinsdóttir

Er Húsvíkingur í húð og hár....gift byggingarfræðinema og eigum við tvo fallega stráka . Er þroskaþjálfi og bý í Horsens, Danmörku. Blogga um það sem mér dettur í hug hverju sinni, en sleppi pólítík og öðru sem ég hef takmarkaðan áhuga á!

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband